SAMLEIK, samtök foreldra leikskólabarna

Þann 1. mars 2011 voru samtök foreldra leikskólabarna í Kópavogi stofnuð á stofnfundi í Kópavogsskóla við Digranesveg.

Markmið samtakanna eru meðal annars að standa vörð um réttindi barna til menntunar og þroska, efla fræðslu, stuðla að auknum samskiptium foreldra og skóla og vera vettvangur foreldra til að koma saman. 

Samtökin halda úti heimasíðu og fésbókarsíðu þar sem allar upplýsingar um starfsemina koma fram.