Samkvæmt lögum um leikskóla frá 29. maí 2008 skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Skal kosning fara fram í september á hverju ári og skal kosið til eins árs í senn. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír fulltrúar. Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Góðar upplýsingar eru um hlutverk foreldraráða hjá Heimili og skóli.
Foreldraráð 2023-2024
- Snorri Páll Þórðarson
- Arnór Sveinn Aðalsteinsson
- Halldóra Lillý Jóhannsdóttir
- Hildur Sigurðardóttir
- Anna Rósa Sigurjónsdóttir leikskólastjóri
Starfsreglur foreldraráðs:
- Leikskólastjóri kallar ráðið saman til fyrsta fundar fyrir 15. október ár hvert.
- Formaður og ritari ráðsins eru kosnir á fyrsta fundi ráðsins.
- Foreldraráðið ákveður fastann fundartíma á fyrsta fundi.
- Aukafundir eru haldnir ef þurfa þykir.
- Ef tveir aðilar innan ráðsins óska eftir aukafundi skal boða til hans innan viku frá beiðni til formanns.
- Fundargerðir skulu birtar á heimasíðu leikskólans.
- Ráðið getur kallað til aðra foreldra eða starfsmenn á fund eða til að vinna ákveðin verkefni eftir þörfum hverju sinni.
- Ráðið er kosið í október til eins árs í senn.