Börn eru félagsverur sem nota ýmsar aðferðir til að tjá sig og eiga samskipti við annað fólk. Læsi, í víðum skilningi þess orðs, er mikilvægur þáttur samskipta og felur í sér að búa yfir þekkingu og leikni til að skynja, skilja, túlka, gagnrýna og miðla. Hér átt við talmál, myndmál, ritmál, tölur og önnur kerfi tákna sem hjálpa börnum að lesa í umhverfi sitt og nota tungumálið á fjölbreyttan hátt.
Á fyrstu æviárunum fer máltaka barna fram. Rannsóknir sýna að ef lesið er fyrir börn frá unga aldri eykur það velgengni þeirra í námi síðar meir á ævinni.
Hér er Stefna um mál og læsi Álfaheiðar
Hér er handbókin, Snemmtæk íhlutun, mál og læsi
Markmið með handbókinni er að tryggja að öll börn leikskólans fái jöfn tækifæri og nái hámarksárangri hvað varðar mál, tal og boðskipti. Hún nýtist starfsfólki, forráðamönnum og öðrum áhugasömum til að öðlast skilning og þekkingu á málörvun. Handbókin nýtast einnig mjög vel í kennslu barna með íslensku sem annað mál.
Rannsóknir sýna fram á að góður málþroski skiptir miklu máli í leik og námi barna, hann hefur áhrif á félagsleg samskipti þeirra og möguleika á að verða virkir þegnar í lýðræðissamfélagi