Vináttudaginn í skólum Kópavogs

Nemendur leik-og grunnskóla í Kópavogi og starfsfólk skólanna fögnuðu vináttunni með ýmsum viðburðum í tilefni Alþjóðadags gegn einelti, 8. nóvember. Daginn bar upp á sunnudag í ár og var því ýmist haldið upp á hann föstudaginn 6. nóvember eða mánudaginn 9.nóvember.
Ýmis konar dagskrá var í skólahverfum Kópavogs og er markmiðið að stuðla að jákvæðum samskiptum og vekja athygli á mikilvægi virðingar og vináttu.
Í íþróttahúsinu Digranesi söng skólakórinn og svo mætti leynigesturinn Páll Óskar sem flutti lagið Eitt af blómunum og fleiri af sínum lögum við góðar undirtektir nemenda úr Álfhólsskóla, og leikskólunum Fögrubrekku, Efstahjalla og Álfaheiði.
Fréttamynd - Vináttudaginn í skólum Kópavogs Fréttamynd - Vináttudaginn í skólum Kópavogs Fréttamynd - Vináttudaginn í skólum Kópavogs Fréttamynd - Vináttudaginn í skólum Kópavogs Fréttamynd - Vináttudaginn í skólum Kópavogs

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn