Afmæli Isabellu, styrktarbarns leikskólans og gulur dagur

Í dag héldum við upp á afmæli Isabellu en hún er 10 ára í dag og það var gaman að sjá hversu margir komu í einhverju gulu. Við tókum á móti foreldrum um morguninn og boðið var upp á ávaxtahressingur. Það var baukur á deildum og börnin og starfsfólk settu pening í hann því framfærsla Isabellu er samvinnuverkefni barna, foreldra og starfsfólks. Að lokinni heimsókn foreldra var fagnaðarfundur í boði elstu barnana og þar sungum við afmælissönginn og skemmtum okkur saman. Við þökkum foreldrum fyrir komuna og þá sem sáu sér fært að styrkja Isabellu.
Fréttamynd - Afmæli Isabellu, styrktarbarns leikskólans og gulur dagur Fréttamynd - Afmæli Isabellu, styrktarbarns leikskólans og gulur dagur

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn