Aðalfundur foreldrafélagsins
Aðalfundur foreldrafélagsins var í gær. Í uppphafi fundar var stutt kynning á starfi leikskólans og Hrönn Valgeirsdóttir sérkennslustjóri kynnti farsældarlögin. Að því loknu kynntum við Lausnarhringinn en það er þróunarverkefni sem Álfaheiði ásamt nokkrum öðrum leikskólum taka þátt í næstu tvö skólaárin en Lausnarhringurinn hjálpar okkur að efla félagsfærni, samskiptafærni og sjálfstjórn.
Ársreikningur foreldrafélagsins var kynntur og kosnir voru fulltrúar í foreldrafélag og foreldraráð. Í lokin var kynning á starfi deildanna.
Við þökkum ykkur kærlega fyrir komuna og hlökkum til samstarfsins á skólaárinu.