Þar sem stjörnukisar og gimsteinaeinhyrningar mæta Stitch

Föstudaginn 14. ágúst var opnuð sýning á verkum barnanna í Álfaheiði. Viðfangsefni verkanna er náttúran og landslag og var sýningin unnin i kjölfar heimsóknar barnanna í Safnahúsið. Tilgangur verkefnisins var að skapa börnunum aðstæður til að kanna og þróa eigin sjálfstjáningu og öðlast sjálfstraust til að vinna myndrænt úr þeim viðfangsefnum sem þau voru að fást við. Verkin voru unnin undir handleiðslu Unu B. Sigurðardóttur og var lögð áhersla á að börnin fengju nægan tíma og rými til að gleyma sér í sköpunarferlinu, kanna efnivið og gera tilraunir. Verkefnið hlaut styrk úr Þróunarsjóði leikskóla Kópavogs.
Fréttamynd - Þar sem stjörnukisar og gimsteinaeinhyrningar mæta Stitch Fréttamynd - Þar sem stjörnukisar og gimsteinaeinhyrningar mæta Stitch Fréttamynd - Þar sem stjörnukisar og gimsteinaeinhyrningar mæta Stitch Fréttamynd - Þar sem stjörnukisar og gimsteinaeinhyrningar mæta Stitch

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn