Heimsókn frá Jótlandi
Í dag fengum við góðan hópa danskra leikskólakennara heimsókn. Þau fóru í heimsókn á deildirnar og kynntust því hvernig við vinnum með Barnasáttmálann og hvernig börnin hafa tækifæri til að láta raddir sínar heyrast. Einnig fengu þau að fylgjast með söngstund yngstu barnanna þar sem Arndís tónlistarkennari kynnti hljóðfæri og söng fyrir börnunum. Eftir hádegi buðum við þeim í gönguferð á Álfhólinn og fræddum þau um sögu hólsins og höfðu þau mikið gaman af..