Álfaheiði tekur þátt í þróunarverkefni - lausnarhringurinn
Lausnahringurinn í leikskólum Kópavogs
Leikskóladeild Menntasviðs Kópavogsbæjar hefur hlotið 4.000.000 kr. styrk úr Sprotasjóði til þróunarverkefnisins Lausnahringurinn í leikskólum Kópavogs. Verkefnið er heildstætt forvarnar- og samskiptaefni sem miðar að því að efla félags- og tilfinningafærni barna, styrkja jákvæða samskiptamenningu og stuðla að farsæld í leikskólastarfi.
Lausnahringurinn byggir á íslenskri lausnamiðaðri aðferð og leggur áherslu á sjálfstjórn, samkennd og uppbyggileg samskipti barna í leik, daglegum aðstæðum og samskiptum við jafningja og fullorðna.
Verkefnið er samstarf níu leikskóla í Kópavogi: Álfaheiði, Barnaskóla Kársness, Fífusalir, Furugrund, Grænatúni, Læk, Núpi, Sólhvörfum og Urðarhóli. Innleiðingu og þjálfun leiðir Arnrún María Magnúsdóttir hjá Samtalinu, og verkefnastjóri er Elín Guðrún Pálsdóttir, leikskólaráðgjafi hjá Kópavogsbæ.
Verkefnið styður markmið Aðalnámskrár leikskóla, farsældarlög barna, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og innleiðingu Réttindaleikskóla UNICEF í Kópavogi. Lausnahringurinn hefst í ágúst 2026 og stendur til mars 2028.