Takk fyrir samveruna á sumarhátíðinni
Það var mikið um að vera á föstudaginn síðasta, en dagurinn byrjaði á fagnaðarfundi þar sem Aðalheiður þverflautuleikari (gamall nemandi í Álfaheiði og núverandi starfsmaður í vinnuskólanum) og mamma hennar Jónína (fyrrverandi víóluleikari í Symfóníuhljómsveit Íslands) spiluðu fyrir börnin og kynntu hljóðfærin sín.
Svo tókum við á móti Réttindaskólaviðurkenningu við hátíðlega athöfn (í annað sinn) og elstu börnin, sem sitja í réttindaráði, fengu sérstaka viðurkenningu og litabók að gjöf frá UNICEF.
Það var mikið stuð í hoppuköstulum allan daginn, andlitsmálning og ljúffengir nýbakaðir kanelsnúðar með kaffinu.
Það safnaðist ekki mikið í baukana hennar Isabellu sem gleymdust í öllu fjörinu, en það má líka alltaf leggja inn á reikninginn hennar:
0322-22-005988 kt:621209-1670 öll framlög stór sem smá eru vel þegin.
Takk kærlega fyrir komuna