Viðurkenning frá Heimili og skóla

Hrönn Valgeirsdóttir fékk á dögunum viðurkenningu frá samtökum Heimilis og skóla fyrir fræðslukvöld sem hún hélt fyrir foreldra ungra barna í Kópavogi og voru fræðslukvöldin fjögur samtals. Við óskum Hrönn innilega til hamingju og erum stolt af því að hafa hana í okkar öfluga starfsmannahópi.