Afmæli Ísabellu og gulur dagur

Föstudaginn 8.nóvember nk. milli kl. 8:00 og 9:00 höldum við upp á 3 ára afmæli Isabellu, SOS styrktarbarn leikskólans. Við bjóðum alla foreldra velkomna í ávaxtahressingu og smákökur sem börnin hafa bakað. Við söfnum fyrir framfærslu Isabellu og það verða baukar á deildum. Börnin á Lundi halda upp á afmælið á lóð leikskólans en aðrar deildir verða inni. Þennan sama dag ætlum við öll að mæta í einhverju gulu og halda upp á guladaginn.