Gulur dagur í tilefni afmælis Isabellu

Við héldum upp á 4 ára afmæli Isabellu, SOS styrktarbarns leikskólans, í dag fimmtudaginn 12. nóvember. Að þessu sinni komu foreldrar ekki í morgunkaffi en sunginn var afmælissöngurinn á deildum og börnin voru frædd um hagi hennar. Elín matráður bauð upp á heimabakaðar pizzur í hádeginu og eftirrétt. Allir mættu kátir og hressir í einhverju gulu til að lífga upp á daginn.
Við söfnum fyrir framfærslu Isabellu og það verða baukar fyrir utan innganga deilda sem börnin geta sett í pening, því margt smátt gerir eitt stórt
Fréttamynd - Gulur dagur í tilefni afmælis Isabellu Fréttamynd - Gulur dagur í tilefni afmælis Isabellu

Smellið á myndir til að sjá þær í stærri upplausn