Lestrarátak í nóvember

Árlega lestrarátakið okkar, Það er gaman að lesa saman, byrjar í dag 1. nóvember og stendur yfir allan mánuðinn. Það verður bókakassi/kistill á hverri deild og geta börnin fengið að láni eina bók í einu. Börnin fá blað með sér heim þar sem krossa ber í reit þegar foreldrar hafa lesið með barni sínu. Í lok átaksins fá öll börnin bókaverðlaun frá foreldrafélaginu.