Bilun í viðburðardagatali

Því miður er ennþá bilun í viðburðardagatali heimasíðunnar okkar. Við bendum ykkur á að prenta út leikskóladagatalið og hengja upp á ísskápinn eða aðgengilegan stað svo þið missið af engu. Næsti viðburður okkar í leikskólanum verður n.k. föstudag, en þá ætla börnin á Lundi að bjóða börnum og starfsfólki á örðum deildum á fagnaðarfund. Framundan er svo lestrarátakið okkar í allan nóvember. Það mun fara fram með svipuðum hætti og undanfarin ár og er í tilefni af Degi íslenskrar tungu sem er 16. nóvember ár hvert. Við munum setja inn upplýsingar hér þegar nær dregur. Ísabella styrktarbarnið okkar (hægt að lesa um hana undir hnappnum Námið) á afmæli í nóvember og af því tilefni ætlum við að hafa afmæliskaffi henni til heiðurs föstudaginn 8. nóvember. Þann dag ætlum við líka að hafa gulan dag og mæta í einhverju gulu. Við munum setja inn upplýsingar hér þegar nær dregur. Fimmtudaginn 21. nóvember verður svo lokað í leikskólanum vegna skipulagsdags.