Evrópsk viðurkenning

Leikskólinn Álfaheiði var að fá evrópska viðurkenningu í eTwinning fyrir verkefnið Children at the opera, bambini all'opera sem starfsfólk og börn á Hjalla vann að síðasta skólaár. Eins og nafn verkefnisins gefur til kynna var unnið með tónlist á mjög fjölbreyttan hátt. Hápunktur verkefnisins var svo söngleikur sem börnin sýndu foreldrum sínum á Opnu húsi í maí. Því miður þá leyfir þetta form á heimasíðu okkur ekki að sýna ykkur mynd af verðlaunaskjalinu, en við munum hengja það upp á Lundi þar sem börnin eru núna.